Nýr lífstíll

með hjálp DDV :)

tvöfaldar vikur

ég virðist fá sömu töluna 2x í röð á vigtinni :) léttist sem sagt um 700grömm þessa vikuna, mjög sátt við það, sérstaklega ef tillit er tekið til mataræðisins og ræktarinnar.

Ég er ennþá á hollu brautinni og reyni að komast á þá dönsku en er ekki enn að koma öllu þessu niður, ég hugsa að ég reyni bara eins og ég get og kem með fréttir þegar þetta gengur eitthvað hjá mér.

Annars gengur lífið mjög vel þessa dagana, styttist reyndar óhugnalega mikið í prófin.

apríl 10, 2008 Höfundur: Rakel | Vigtin | | 7 Ummæli

Matarlyst og ræktin

Matarlystin er ennþá að stríða mér, ég hef satt best að segja lítið fylgt danska í eiginlegri merkingu síðan um helgina, ég bara kem ekki svona mat ofan í mig.  Ég hef reyndar alveg haldið mig á hollustu brautinni og reyni að borða mikið af grænmeti og er að reyna að halda í eitthvað af dönsku hugsununum.  Ég ætla að gefa þessu einhvern sjens í viðbót og sjá hvort mér tekst að auka við mig aftur.

Ræktin gengur rosalega vel og mér finnst æði að mæta, er farin að fara 4-5x í viku, lyfti 2x í viku og brenni 2-3x í viku.  Ætla að halda mig við þetta plan í einhvern tíma og bæta svo við lyftingarnar.

Annars gengur lífið bara vel

Vonandi gengur öllum vel, ég ætla að smella mér bloggrúnt.

apríl 8, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn, Pælingar | | 2 Ummæli

jæja

hér er ég loksins :)

Af vigtinni er það að frétta að ég komst ekkert í síðustu viku en náði að smella mér áðan og það var nú ekki stórt en þó nóg til að ná markmiðinu mínu :) það kvöddu sem sagt 700gr og þá 5.4kg farin á danska og 8,5 í heildina.

Annars er ég að reyna að vinna mig upp í mataræðinu, missti matarlystina alveg um helgina og það var ekki séns að koma neinu niður, er svo búin að vera að auka við skammtana í vikunni, get reyndar ennþá ekki klárað allt og er ekki viss um að ég nái þessu alveg góðu strax er ennþá svo lystarlítil og ennþá með smá kvef í mér.

 En það voru einhverjar að biðja um pizzabotn uppskriftina mína þá er hún mjög einföld,

Pizzabotn:

2dl volgt vatn
1bréf ger (sett út í vatnið)
1tsk salt
2msk olía
5dl hveiti hnoðað í.

Þetta er svo látið hefast í 45-60 mínútur
Ég flet svo botninn út og baka í 5-10 mín, sker svo sneið sem ég giska á að sé 60-90g eftir því hvað ég á mikið brauð inni og set áleggið á.

Ég ætla að segja þetta gott í bili, reyni að vera duglegri að blogga.

apríl 3, 2008 Höfundur: Rakel | Markmið, Maturinn, Uppskriftir, Vigtin | | 1 ummæli

Páskunum lokið

Þetta voru æðislegir páskar, hellings afslöppun og ég naut lífsins vel með fjölskyldunni.

Maturinn var góður og í ágætis-málum, ég fékk mér smá smakk af páskaeggi en langaði svo ekkert í meira.  Dagurinn í dag og gær eru búnir að vera svona lala, ég er svo stífluð og með hálsbólgu, hef nánast enga lyst á matnum og hef ekki náð að klára skammtana, nema grænmetisskammt hádegisins, hann kláraði ég á þrem tímum!

En vonandi ríf ég þetta úr mér sem fyrst, er engan vegin að nenna einhverjum veikindum. 

Með vigtun í þessari viku er ég að vona að komast á fimmtudaginn, svo brjálað að gera hjá manninum mínum svo að ég ætla að reyna að komast á vigtun og fund og þá er fimmtudagurinn líklegastur til að það takist.

mars 25, 2008 Höfundur: Rakel | Uncategorized | | 3 Ummæli

Dagurinn í dag………….

…..er sko langt frá því að vera 100%, er búin að vera á flakki og það er sko ekki gott þegar skipulagið klikkar.  Maturinn var nokkuð góður en ekki vigtaður og ekki nógu nákvæmur en það þýðir ekkert að svekkja sig, ég tek morgundaginn með trompi :)

Annars er allt gott og ég hlakka bara til helgarinnar, verðum með matarboð bæði á morgun og laugardag og þá get ég nottla stjórnað því sem er í boði :)  Ætlum að hafa kjúklingarétt á morgun, sem þarf reyndar að aðeins að gera sér fyrir mig því það er kókosmjólk í honum, en ég ætla að taka frá áður en kókósmjólkin fer í og setja smá kókosdropa í hann.  Á laugardaginn verður svo lambalæri :P namm

Svo er það kalkúnn á sunnudaginn, er búin að ákveða að fá mér smá stöff og reikna það bara sem brauðskammt.

Vonandi gengur öllum vel um páskahelgina

mars 20, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn | | 3 Ummæli

Vigtun

Smellti mér á vigtina áðan, komst ekki í gær.  600grömm fóru aðra vikuna í röð, hefðu mátt vera svona cirka 300grömmum fleiri en ég fæ bara smá svona boost að standa mig vel yfir páskana og ná 5kg í næstu viku.

Annars er allt gott að frétta, nóg búið að vera að gera en er samt komin í páskafrí núna :)  Fór í ræktina á mánudaginn og tók á í tvo tíma, smellti mér í morgun og tók ágætis brennslu :)

Svo gerðist ég svo fræg að kaupa barbapabba grasker áðan, ætla að búa til gaskersmús til að hafa með matnum á páskadag.  Er samt að spá í að prufa það á morgun ef ég skildi nú ekki fíla það :P

Ætla að smella mér bloggrúnt og sjá hvernig ykkur hinum gengur

mars 19, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn, Vigtin | | 3 Ummæli

Nartþörf

Er búin að hafa einhverja óþolandi nartþörf svífandi yfir mér í allan dag, gruna tíðarhringinn um þetta bögg.  Ef það hefði eitthvað góðgæti verið til hér heima hefði ég sko eflaust gætt mér á því en núna er ég hætt að vorkenna mér, ætla að elda góðan mat og fá mér ís (heimatilbúinn DDV nottla) með súkkulaðisósu og jarðaberjum í eftirrétt. 

Voðalega er samt eitthvað erfitt þegar svona kemur yfir mann, þetta er í fyrsta sinn núna síðan ég byrjaði, en ég er fegin að ég lét ekki undan og ætla ekki að láta undan!

Annars hefur vikan verið góð, nóg að gera reyndar og helgin verður svipuð, ætla að skipuleggja morgundaginn vel því það verður eflaust ekki mikill tími fyrir matarpælingar.

Vonandi gengur ykkur vel :)

mars 14, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn, Pælingar | | 2 Ummæli

Lítil vika

vikan var mjög góð og ég var svona smá farin að vonast eftir miklum létting, en 600 grömm trítluðu af tölunni á vigtinni áðan.  Get samt ekki annað en verið sátt og þá á ég bara 900 grömm eftir í 5kg (á ddv) og ég vona að ég nái því í næstu viku.  Þá er ég tveim vikum á undan markmiðinu :)

Annars er ég að læra fyrir próf svo ég skrifa kannski betur á morgun :)

mars 11, 2008 Höfundur: Rakel | Vigtin | | 5 Ummæli

Enn ein vikan að hefjast

Tíminn líður eitthvað svo ótrúlega hratt, helgarnar hverfa hver af öðrum og vikurnar hálf fljúga frá manni.  En helgin er búin að vera fín, er búin að vera á hellings búðarrölti, er að ákveða útskriftafötin mín og er búin að kaupa smávegis efni (þó það eigi að fylgja 5kg verðlaununum), keypti leður fyrir í pils :)

Maturinn gengur mjög vel, fékk mér lifur á nings á föstudaginn, get nú ekki borðað svona oft, finnst áferðin ekki beint girnileg en kom þessu svo sem alveg niður án nokkurra vankvæða.  Ég fékk mér svo nings (tófú) aftur í kvöld, leti í eldhúsinu, en ég er stolt af mér því maðurinn minn og dóttir mín gæddu sér á pizzu :)  Reyndar var kallinn svo sniðugur að fá sér pizzu með gráðosti svo það er ekki séns að ég snerti hana :D

Svona lítur vikan út

8x Fiskur
1x Lifur
4x Egg
3x Kjöt

3x Feitur ostur
3x Morgunkorn
1x kjúklingur

6/21 extra krossum

Fínasta vika að baki, vona að hún skili sér vel á vigtinni.

mars 9, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn | | 3 Ummæli

Alveg að koma helgarfrí

Prinsessan á heimilinu er búin að vera veik, ég er sem betur fer í fríi fyrir hádegi í dag og svo alveg á morgun, er samt að vona að hún haldist hress í dag og komist á morgun í leikskólann.

gærdagurinn var rosa góður

Morgunmatur: 30g speltrúgbrauð, 25g ostur, 4g smyrja, appelsínusafi
Millibiti: epli
Hádegismatur: 120g lax, 300g blómkál og rófur, 7g olía, 30g brauð
Kvöldmatur: 170g hakkbuff, 300g rófufranskar og gúrka og tómatar, 6g 0lía
Eftirréttur: Mangó og hindberjaís

Annars er ég bara hress og kát, kvefið svona heldur á undanhaldi og vonandi verð ég alveg laus við það sem fyrst :)

mars 6, 2008 Höfundur: Rakel | Maturinn | | 4 Ummæli